Hér fyrir neðan eru uppskriftir sem 1. bekkur Ingunnarskóla er að nota. Athugið að sumt sem þau gera í tímum er úr pakka og þá er uppskriftin aftan á umbúðunum og er því ekki á þessum lista.
Stafabrauð
Hráefni:
1 ½ dl. volgt vatn
1 tsk. þurrger
1 tsk. hunang
¼ tsk. salt
1 ½ msk. sesamfræ
1 msk. matarolía
1 ½ dl. heilhveiti
1 ½ dl. hveiti
Aðferð:
Munið að ofnar eru misjafnir þannig að aldrei er hægt að treysta algerlega á bökunartímann sem gefinn er upp!
Smjörkökur
Hráefni:
2 ½ dl. Hveiti
½ dl. Sykur
100 gr. Smjör
½ dl. Brytjað súkkulaði (má sleppa)
Aðferð:
Setjið hveitið og sykurinn í skál og myljið smjörið samanvið.
Bætið súkkulaðinu í og blandið vel samanvið.
Búið til kúlur í lófanum, setjið þær á bökunarplötu og þrýstið aðeins niður þannig að þær verði flatar.
Stillið ofninn á 200°C og blástur og bakið kökurnar í 15 – 20 mínútur.
Gerbollur – grunnuppskrift – hægt að nota í ýmislegt og svo breytum við og bætum eftir þörfum.
Hráefni:
1 dl. volgt vatn
1 ½ tsk þurrger
1 tsk hunang
¼ tsk salt
2 msk. hveitiklíð
1 msk. matarolía
2 – 2 ½ dl. hveiti
Aðferð:
Ath. Það er mjög gott að setja alls konar fræ ofan á brauðið t.d. sesamfræ eða sólblómafræ.
Ingunnarskólapítsa
1 dl. volgt vatn
1 ¼ tsk. þurrger
¼ tsk. salt
1 msk. hveitiklíð (má sleppa)
1 msk. matarolía
2 ½ dl. hveiti
Munið að ofnar eru misjafnir og því er aldrei hægt að treysta eingöngu á þann bökunartíma sem gefinn er upp. Fylgist því vel með ofninum.
Kókoskúlur
-
1 dl. Sykur (eða hrásykur)
3 dl. Haframjöl
3 msk. Kakó
-Myljið saman við:
50 gr. Smjör
-Bætið í og hrærið og hnoðið vel saman:
2 msk. Mjólk
¼ tsk. Vanilludropar
-Búið til litlar kúlur úr deiginu, veltið þeim upp úr kókosmjöli og kælið í ísskáp.
Piparkökur Ingunnarskóla
2 dl. hveiti
¾ dl. sykur
½ tsk. engifer
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
½ tsk. matarsódi
50 gr. Smjörlíki
Smjörlíkinu og þurrefnunum blandað vel saman.
1 msk. mjólk
2 msk. síróp
Hrært saman með sleif og síðan hnoðað.
Flatt út með kökukefli og skorið með piparkökumótum.
Einnig má búa til lengju, skera hana í bita, móta kúlur og þrýsta niður með gaffli.
Hiti: 200° C
Tími: 8 – 10 mínútur.
Munið að ofnar eru misjafnir og því aldrei hægt að baka alveg eftir klukku!
Tortillakökur með osti og salsasósu/pítsusósu.
Hráefni:
Mjúkar mexíkópönnukökur (Tortillakökur)
Ostbiti
Salsasósa/pitsusósa/BBQ sósa
Aðferð:
Það er í góðu lagi að sleppa salsasósunni eða nota tómatsósu í staðinn. Eins getur verið gott að setja ýmislegt álegg á kökuna líka t.d. grænmeti eða skinku
Kexpitsa
Hráefni:
Ritzkex
Pizzasósa
Rifinn ostur
Aðferð:
Ávaxtapinnar
Hráefni:
Ávextir að eigin vali
Grillpinnar
Aðferð:
Grænmetiskarlar
Hráefni:
Biti af gúrku
Biti af blómkáli
1 gulrót – skorin í tvennt
2 paprikubitar
5 tannstönglar
Aðferð:
Skolið og hreinsið grænmetið eftir þörfum
Notið tannstöngla til að festa saman karlinn. Búkurinn er gúrka, blómkálið hausinn, paprika er hendur og gulrætur eru fætur. Að sjálfsögðu er hægt að nota grænmeti að eigin vali eftir því hvað er til.
! Nauðsynlegt er að aðstoða börnin við að skera grænmetið í hæfilega bita.
Gott er að hafa grænmetissósu eða bragðbættan sýrðan rjóma til að dýfa í.
Flækjubrauð
Hráefni:
1 ½ dl. volgt vatn
1 ½ tsk þurrger
½ tsk salt
½ dl. haframjöl
2 msk. hveitiklíð
2 msk. sesamfræ
1 msk. matarolía
2 – 2 ½ dl. hveiti
Aðferð:
Stafabrauð
Hráefni:
1 ½ dl. volgt vatn
1 tsk. þurrger
1 tsk. hunang
¼ tsk. salt
1 ½ msk. sesamfræ
1 msk. matarolía
1 ½ dl. heilhveiti
1 ½ dl. hveiti
Aðferð:
- Setjið vatn, þurrger, hunang, salt, sesamfræ og matarolíu í skál og hrærið vel saman.
- Bætið heilhveiti og hveiti útí og hrærið eins vel og þið getið í skálinni.
- Prufið hvort þið getið hnoðað án þess að verða mikið kámug á fingrum. Bætið við hveiti eftir þörfum.
- Hnoðið mjög vel á hveitistráðu borði.
- Setjið deigið aftur í skálina og látið bíða á hlýjum stað í 20 – 25 mínútur þannig að deigið hefist.
- Hnoðið aftur á borðinu vel og vandlega.
- Mótið fyrsta stafinn í nafninu ykkar. Setjið hann á bökunarplötu. Muna að nota bökunarpappír.
- Bakið í u.þ.b. 15 mínútur á 200°C hita.
Munið að ofnar eru misjafnir þannig að aldrei er hægt að treysta algerlega á bökunartímann sem gefinn er upp!
Smjörkökur
Hráefni:
2 ½ dl. Hveiti
½ dl. Sykur
100 gr. Smjör
½ dl. Brytjað súkkulaði (má sleppa)
Aðferð:
Setjið hveitið og sykurinn í skál og myljið smjörið samanvið.
Bætið súkkulaðinu í og blandið vel samanvið.
Búið til kúlur í lófanum, setjið þær á bökunarplötu og þrýstið aðeins niður þannig að þær verði flatar.
Stillið ofninn á 200°C og blástur og bakið kökurnar í 15 – 20 mínútur.
Gerbollur – grunnuppskrift – hægt að nota í ýmislegt og svo breytum við og bætum eftir þörfum.
Hráefni:
1 dl. volgt vatn
1 ½ tsk þurrger
1 tsk hunang
¼ tsk salt
2 msk. hveitiklíð
1 msk. matarolía
2 – 2 ½ dl. hveiti
Aðferð:
- Setjið allt í skál í þeirri röð sem það er hér að ofan. Athugið að það er gott að hræra svolítið áður en hveitið er sett útí!
- Hrærið vel og bætið við hveiti ef þörf er á (eða örlitlu vatni ef deigið er of þurrt).
- Hnoðið vel og vandlega.
- Setjið deigið aftur í skálina og látið það hefast á hlýjum stað í um það bil 15 mínútur.
- Mótið falleg brauð að eigin vali og setjið á bökunarplötu – munið að nota bökunarpappír.
- Penslið yfir brauðin með vatni, mjólk eða matarolíu.
- Látið lyfta sér á plötunni í 15 mínútur.
- Bakið við 200°C hita í um það bil 12 – 15 mínútur.
Ath. Það er mjög gott að setja alls konar fræ ofan á brauðið t.d. sesamfræ eða sólblómafræ.
Ingunnarskólapítsa
- Efnin sett í skál í þessari röð:
1 dl. volgt vatn
1 ¼ tsk. þurrger
¼ tsk. salt
1 msk. hveitiklíð (má sleppa)
1 msk. matarolía
2 ½ dl. hveiti
- Hrært vel
- Látið lyfta sér á hlýjum stað í 15 mínútur.
- Kveikið á ofninum – 225°C (við notum oftast blástur – má líka vera undir og yfir hiti)
- Hnoðað á borði. Deigið á að vera frekar lint, þó þannig að það festist ekki við borð og hendur.
- Flatt út á hveitistráðu borði í fremur þunnan botn.
- Botninn settur á bökunarplötu. Gott að hafa bökunarpappír undir.
- Smurt með pítsusósu og áleggið og osturinn sett á.
- Bakað í miðjum í 10 – 15 mínútur.
Munið að ofnar eru misjafnir og því er aldrei hægt að treysta eingöngu á þann bökunartíma sem gefinn er upp. Fylgist því vel með ofninum.
Kókoskúlur
-
1 dl. Sykur (eða hrásykur)
3 dl. Haframjöl
3 msk. Kakó
-Myljið saman við:
50 gr. Smjör
-Bætið í og hrærið og hnoðið vel saman:
2 msk. Mjólk
¼ tsk. Vanilludropar
-Búið til litlar kúlur úr deiginu, veltið þeim upp úr kókosmjöli og kælið í ísskáp.
Piparkökur Ingunnarskóla
2 dl. hveiti
¾ dl. sykur
½ tsk. engifer
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
½ tsk. matarsódi
50 gr. Smjörlíki
Smjörlíkinu og þurrefnunum blandað vel saman.
1 msk. mjólk
2 msk. síróp
Hrært saman með sleif og síðan hnoðað.
Flatt út með kökukefli og skorið með piparkökumótum.
Einnig má búa til lengju, skera hana í bita, móta kúlur og þrýsta niður með gaffli.
Hiti: 200° C
Tími: 8 – 10 mínútur.
Munið að ofnar eru misjafnir og því aldrei hægt að baka alveg eftir klukku!
Tortillakökur með osti og salsasósu/pítsusósu.
Hráefni:
Mjúkar mexíkópönnukökur (Tortillakökur)
Ostbiti
Salsasósa/pitsusósa/BBQ sósa
Aðferð:
- Setjið örlitla salsasósu á mexíkópönnuköku og dreifið vel úr.
- Rífið ostinn og setjið yfir.
- Brjótið kökuna saman eða rúllið henni upp.
- Hitið í smá stund í örbylgjuofni eða bakarofni (200°C og blástur!)
Það er í góðu lagi að sleppa salsasósunni eða nota tómatsósu í staðinn. Eins getur verið gott að setja ýmislegt álegg á kökuna líka t.d. grænmeti eða skinku
Kexpitsa
Hráefni:
Ritzkex
Pizzasósa
Rifinn ostur
Aðferð:
- Setjið smávegis pizzasósu á ritzkexköku – dreifið með teskeið.
- Setjið rifinn ost ofaná.
- Hitið í örlitla stund. Í heimilisfræðinni setjum við í u.þ.b. 10 – 15 sek. í örbylgjuofninn.
Ávaxtapinnar
Hráefni:
Ávextir að eigin vali
Grillpinnar
Aðferð:
- Flysjið ávexti sem þarf að flysja.
- Skolið ávexti sem þarf að skola.
- Skerið í bita sem eru passlega stórir til að tolla á grillpinnanum!
- Setjið bitana á grillpinnann – hæfilegt að hafa einn pinna á mann.
Grænmetiskarlar
Hráefni:
Biti af gúrku
Biti af blómkáli
1 gulrót – skorin í tvennt
2 paprikubitar
5 tannstönglar
Aðferð:
Skolið og hreinsið grænmetið eftir þörfum
Notið tannstöngla til að festa saman karlinn. Búkurinn er gúrka, blómkálið hausinn, paprika er hendur og gulrætur eru fætur. Að sjálfsögðu er hægt að nota grænmeti að eigin vali eftir því hvað er til.
! Nauðsynlegt er að aðstoða börnin við að skera grænmetið í hæfilega bita.
Gott er að hafa grænmetissósu eða bragðbættan sýrðan rjóma til að dýfa í.
Flækjubrauð
Hráefni:
1 ½ dl. volgt vatn
1 ½ tsk þurrger
½ tsk salt
½ dl. haframjöl
2 msk. hveitiklíð
2 msk. sesamfræ
1 msk. matarolía
2 – 2 ½ dl. hveiti
Aðferð:
- Setjið allt í skál í þeirri röð sem það er hér að ofan. Athugið að það er gott að hræra svolítið áður en hveitið er sett útí!
- Hrærið vel og bætið við hveiti ef þörf er á (eða örlitlu vatni ef deigið er of þurrt).
- Hnoðið vel og vandlega.
- Rúllið út í langa, langa, langa lengju
- Búið til flækju úr lengjunni og setjið hana á bökunarplötu. Munið að nota bökunarpappír.
- Penslið yfir með volgu vatni.
- Bakið í 12 – 15 mínútur á 200°C hita og blæstri.