1. bekkur á heimilisfræðitíma tvisvar sinnum í viku - í fyrstu lotu á mánudögum og miðvikudögum. Nemendum er skipt í fjóra hópa - gulan, rauðan, grænan og bláan og skiptast þessir tímar jafnt á milli hópanna. Græni og blái hópurinn eru á mánudögum og guli og rauði á miðvikudögum. Haustönninni er skipt upp í tvö tímabil - fyrst koma blái og rauði hópurinn 7 vikur í röð og svo koma græni og guli hópurinn 7 vikur í röð. Eftir áramót er svo sami hátturinn á - fyrri hluta annarinnar koma rauði og blái hópurinn og seinni hluta annarinnar koma græni og guli hópurinn. Allir hópar baka svo piparkökur í desember og eru foreldrar velkomnir með sínu barni ef þeir hafa tök á en það er engin skyldumæting.