Húsráð úr ýmsum áttum!
Matarsódi
Matarsódi er fjölnota efni sem hægt er að nota bæði í baksturinn og þrifin á heimilinu. Hann fjarlægir lykt úr fötum, teppum og ísskápum, leysir upp fitu og ef honum er blandað saman við borðedik er hægt að losa um stíflur í niðurföllum og vöskum. Matarsóda er einnig hægt að nota til þess að ná blettum úr fötum og hreinsa kaffikönnur.
Edik
Borðedik er til ýmissa hluta nytsamlegt. Það er sótthreinsandi og hægt er að nota það til að ná fitublettum úr flíkum og hvíttar þvott á náttúrulegan hátt.
Geymsluaðferðir
Nauðsynlegt er að geyma mat og bakstur við réttar aðstæður, þannig fáum við meira út úr hráefninu sem við kaupum.
Geysmluþol og aðferðir:
Smákökur geymast vel í góðum loftþéttum kökuboxum. Helst á köldum stað.
Einnig má frysta smákökur, við það eykst geymsluþolið enn frekar.
Nauðsynlegt er að geyma smákökur eins og t.d. Sörur í frysti.
Gott er að raða smákökum, sem í er hátt fituinnhald, lagskipt í box með smjörpappír/bökunarpappír á milli.
Formkökur, lagkökur, tertubotna og sandkökur geymast vel í frysti.
Ávaxtakökur, sem í er vín eða dreypt er á vín er óþarfi að frysta. Vínið eykur geymsluþol til muna og þær verða jafnvel enn betri við geymslu.
Gerbrauð og bollur er auðvelt að frysta og taka úr frysti jöfnum höndum eftir notkun.
Tekið af vefnum leidbeiningastod.is - margt gott og gagnlegt sem finnst þar.