Velkomin á heimasíðu Auðhumlu. Auðhumla er heimilisfræðistofan í Ingunnarskóla. Á þessari síðu er hægt að nálgast uppskriftir, húsráð og ýmislegt fleira. Sum verkefni eru vinsælli en önnur og því tekin fyrir í mismunandi árgöngum.
HeimilisfræðikennslanHeimilisfræðistofan í Ingunnarskóla er þéttsetin alla daga vikunnar. Þangað mæta nemendur í 1. - 10. bekk í litlum hópum, fullir áhuga og tilbúnir til starfa. Kennslan er verkleg ásamt því að nemendur hlusta á fyrirlestra í tímum - ýmist í byrjun tíma eða meðan þeir eru að vinna. Kennsla og verkefni grundvallast á aðalnámskrá grunnskóla. Grunþættir aðalnámskrár 2011 eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Nánari upplýsingar um aðalnámskrá er að finna á: http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/adalnamskra-grunnskola/
|
|
Á döfinni:
|