Haustið 2011 fengu nokkrir kennarar í Ingunnarskóla þróunarstyrk til þess að vinna verkefni varðandi Goðafræði. Ákveðið var að tengja þróunarverkefnið við 10 ára afmæli skólans og unnu nemendur ýmis verkefni í tengslum við það sem sýnd voru á afmælishátíð skólans í desember það ár. Lilja Jóna Torfadóttir kennari við skólann fékk þá hugmynd að nefna allar kennslustofur skólans nöfnum úr Goðafræðinni og hlaut kennslustofa heimilisfræðinnar nafnið Auðhumla.
|
Auðhumla, í norrænni goðafræði, er frumkýrin. Hún varð til þegar frost niflheims blandaðist eldum múspelsheims í ginnungagapi. Jötuninn Ýmir varð einnig til þegar þetta gerðist. Auðhumla nærði Ými lengst af með mjólk sinni, en það runnu fjórar mjólkurár úr spenum hennar. Auðhumla nærðist á hrímsteinum og sleikti þá til að fá næringu. Dag einn er hún var að sleikja hrímsteinana birtist hár manns, þann næsta höfuð manns og að lokum, þriðja daginn, birtist maðurinn allur. Maðurinn var kallaður Búri og var hann fyrsti guðinn í norrænni goðafræði.
Heimild: Wikipedia |