Piparkökur Ingunnarskóla
2 dl. hveiti
¾ dl. sykur
½ tsk. engifer
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
½ tsk. matarsódi
50 gr. Smjörlíki
Smjörlíkinu og þurrefnunum blandað vel saman.
1 msk. mjólk
2 msk. síróp
Hrært saman með sleif og síðan hnoðað.
Flatt út með kökukefli og skorið með piparkökumótum.
Einnig má búa til lengju, skera hana í bita, móta kúlur og þrýsta niður með gaffli.
Hiti: 200° C
Tími: 8 – 10 mínútur.
Munið að ofnar eru misjafnir og því aldrei hægt að baka alveg eftir klukku!